Einu sinni var mús sem kom út úr holu sinni
og hitti stórt ljón.
Ljónið vildi borða hana.
- Gerðu það, ekki borða mig.
Einn dag gætir þú þurft á mér að halda.
Ljónið svaraði:
- Þú svona lítil, hvernig má það vera?
Ljónið vorkenndi músinni og leyfði henni að fara.
Einn dag heyrði músin hræðilegt öskur.
Það var ljónið.
Þegar hún kom á staðinn fann hún ljónið fast í neti.
-Ég skal bjarga þér! sagði músin.
- Þú? Þú ert of smá til þess.
Músin byrjaði að naga netið og ljónið losnaði.
Frá þeim degi voru þau óaðskiljanlegir vinir.
Ása Kolka de la Universidad de Islandia nos regaló la traducción del cuento en du idioma natal.
ResponderEliminar